

Í brjálaðri rigningu og roki síðasta laugardag, 7. júní, var fellihýsið krækt aftan á jeppann og þeyst af stað vestur. Leiðin lá inn hinn fagra Hítardal að Hítarvatni. Þeir sem ekki hafa farið inn þennan dal, ættu að drífa sig þangað. Fjöllin sem mynda dalinn, eru ótrúlega fjölbreytt, grágrýti, rauðamöl, þétt sandfjall eða hvað sem tegundir fjalla heita, mynda þennan langa dal. Við hlið sandfjalli var fjall þakið grasi, Ísland ... ótrúlega fallegt land.Bjössi hefur farið ótal ferðir í Hítarvatn, alveg frá því hann var lítill gutti með föður sínum og fengið marga marga fiska. Hann fór á laugardagskvöldið þrátt fyrir rok og rigningu, fékk nokkra.
Við vorum svo sannarlega ekki ein, það var þétt setið af fellihýsum og veiðistöngum. Einn hópurinn var líklega ánægður með veiðina og þurfti að vekja alla á staðnum kl. 4 um nótt með bílflauti frá vatninu og langleiðis út dalinn.
Elma var alsæl með fyrstu ferð sumarsins. Fékk að rúlla upp og niður fellihýsinu eða "kjallaranum" eins og hún kallar fellarann og þeyttist á milli svefnplássana.
Sunnudagurinn var bongóblíða. Þá var skóflan og fatan tekin með niður að vatni og sandkastali búinn til, vaðið í vatninu sem endaði með að skipta þurfti um alklæðnað. Rosa gaman.
Yndisleg ferð.
1 ummæli:
Umhhh... já væri alveg til í veiði núna :-)
Kv.Ág.
Skrifa ummæli