sunnudagur, 8. júní 2008

Hítarvatn



Í brjálaðri rigningu og roki síðasta laugardag, 7. júní, var fellihýsið krækt aftan á jeppann og þeyst af stað vestur. Leiðin lá inn hinn fagra Hítardal að Hítarvatni. Þeir sem ekki hafa farið inn þennan dal, ættu að drífa sig þangað. Fjöllin sem mynda dalinn, eru ótrúlega fjölbreytt, grágrýti, rauðamöl, þétt sandfjall eða hvað sem tegundir fjalla heita, mynda þennan langa dal. Við hlið sandfjalli var fjall þakið grasi, Ísland ... ótrúlega fallegt land.

Bjössi hefur farið ótal ferðir í Hítarvatn, alveg frá því hann var lítill gutti með föður sínum og fengið marga marga fiska. Hann fór á laugardagskvöldið þrátt fyrir rok og rigningu, fékk nokkra.
Við vorum svo sannarlega ekki ein, það var þétt setið af fellihýsum og veiðistöngum. Einn hópurinn var líklega ánægður með veiðina og þurfti að vekja alla á staðnum kl. 4 um nótt með bílflauti frá vatninu og langleiðis út dalinn.
Elma var alsæl með fyrstu ferð sumarsins. Fékk að rúlla upp og niður fellihýsinu eða "kjallaranum" eins og hún kallar fellarann og þeyttist á milli svefnplássana.
Sunnudagurinn var bongóblíða. Þá var skóflan og fatan tekin með niður að vatni og sandkastali búinn til, vaðið í vatninu sem endaði með að skipta þurfti um alklæðnað. Rosa gaman.
Yndisleg ferð.

sunnudagur, 1. júní 2008

Fyrsta hjólaferð Elmu



Elma fann þetta fína hjól með hjálpardekkjum fyrir utan blokkina. Horfði hugfangin á hjólið áður en hún skellti sér á bak. Hún steig á pedalana og flaug af stað. Engin hræðsla, bara gaman ... sérstaklega fyrir móðurina sem hljóp á eftir henni tilbúin til að kasta sér í jörðina til að hindra fall barn sins. Elma fékk góðan stuðning og pepp frá stóru systur sem hjólaði með henni nokkra hringi.

Ása málari

Laufrimi 24 fór í sumarfötin í gær, laugardag 31. maí, er gengið í blokkinni komu saman og máluðu útigang blokkarinnar. Ása málaði ekki aðeins blokkina, heldur sjálfan sig líka, hún var langflottust.

Kósý systkini

Bjartmar og Elma í kósý að horfa á The Simpson, eitt uppáhaldssjónvarpsefni Elmu.