
Bjössi fór inn í Fjörð að klára leggja flísar á baðherbergið hjá mömmu og pabba, framkvæmdir sem hafa verið á framkvæmdarlistanum í 37 ár ... aldrei of seint : )
Seinna um daginn bættumst við Elma í hópinn á Laufvanginn með 2 fulla poka af hátíðarmat. Stuttu síðar komu systur mínar, Helga og Sigurbjörg, og fylgifiskar Sigurbjargar. Þetta varð enn ein óvænt veisla helgarinnar.
Áður en eftirrétturinn var borinn fram, var Bjössi minn þotinn í sína fyrstu veiði ársins, á Þingvallarvatn. Engin var veiðin í það skiptið, varð hann ekki einu sinni var við fisk. Aðeins kuldaboli sem lét heldurbetur vita af sér.
Notarlegur dagur, annar í Hvítasunnu. Bjössi fór aftur nn í Fjörð að setja fúgu á fínu flísarnar. Það er allt annað að sjá baðherbergið eftir að elskan mín lagði töfra hendur sínar yfir það. Nú er aðeins eldhúsið og svalirnar eftir : )
Við Elma dúlluðum okkur heima, horfðum á Söngvaborg, sungum og dönsuðum með og í leiðinni eldaði Elma dýrindis mat úr kaffibaunum sem hún var búin að kvarna niður, kexi, sykri, vatni og einum ananasbita.
Böddi og Ása komu og náðu í systur sína og skelltu sér í Kolaportið og síðan í bíó að sjá Undrahundinn. Við, gamla gengið á Laufrimanum nutum þess að eiga stund saman. Það er yndislegt að vera án barna í smástund.