laugardagur, 27. desember 2008



Elma og vinkona hennar, Matthildur, taka lagið. Elma fékk mikrafóninn í jólagjöf.

Elma and her friend, Matthildur, syng a song. Elma got this microphone in Christmasgift.

Elma á jólaskautanámskeiði


Elma byrjaði á jólaskautanámskeiði hjá Skautafélagi Reykjavíkur í morgun. Hún var voða dugleg, náði að standa ein á skautunum, ganga á þeim en ekki alveg að renna sér og stand á fætur, sem var svolítið erfitt. Elma var rosalega stolt þegar henni tókst að stand fyrsta sinn á fætur án hjálpar, múttan var alveg að springa úr stolti. Elma naut sín vel á svellinu og það var gaman að sjá þessa litlu skvísu standa á fætur með bros á vör eftir hvert fallið eftir öðru og ganga af stað eftir kennara sínum og gera það sem kennarinn sagði nemendunum að gera, t.d. að standa á einum fæti og með hendurnar út.






Elma on a iceskatingworkshop between Christmas, first time standing on the skates by herself. Elma learned how to stand on the skates, have the hands out and stand on one foot and stand up again after falling. That part was difficult for her, but she was very proud when she made it and her mam was bursting out of pride.

miðvikudagur, 24. desember 2008

Jólin komin




Notarlegur aðfangadagur. Fórum í morgun í Mosóbakarý og keyptum Hafliðakonfekt, jólagjöf frá Sissuömmu. Komum heim, mölluðum riz ala mand og horfðum á bíómyndir í sjónvarpinu. Um kl. 15 var grauturinn hámaður í sig ásamt jarðaberjum. Elma fékk möndluna, jólasveinapúsl og blikkdót. Eftir á fengu Elma og Bjössi sér beautyblund og ég naut þess að vera í rólegheitum umkringd jólastemningu.

Cosy afternoon on Christmas Eve Day, Elma and Bjossi got there beautysleep.

mánudagur, 11. ágúst 2008


Feðginin að leik í Lazyboy ... allir vilja sitja í þessum unaðslega stól, en Bjössi hefur einkarétt á honum þó alltaf sé reynt að troða sér á undan honum í hann. Um leið og Bjössi stendur upp er einhver komin í hann.



Drullustelpurnar mínar :) Dömurnar fengu að leika sér með vatnsslönguna í góðviðrinu upp í Brekkuskógi í júní. Þær gerðu sér stóran drullupoll, fóru í pollagalla og stukku út í hann. Þær skemmtu sér "rosalega" vel og voru "rosalega drullugar".

sunnudagur, 8. júní 2008

Hítarvatn



Í brjálaðri rigningu og roki síðasta laugardag, 7. júní, var fellihýsið krækt aftan á jeppann og þeyst af stað vestur. Leiðin lá inn hinn fagra Hítardal að Hítarvatni. Þeir sem ekki hafa farið inn þennan dal, ættu að drífa sig þangað. Fjöllin sem mynda dalinn, eru ótrúlega fjölbreytt, grágrýti, rauðamöl, þétt sandfjall eða hvað sem tegundir fjalla heita, mynda þennan langa dal. Við hlið sandfjalli var fjall þakið grasi, Ísland ... ótrúlega fallegt land.

Bjössi hefur farið ótal ferðir í Hítarvatn, alveg frá því hann var lítill gutti með föður sínum og fengið marga marga fiska. Hann fór á laugardagskvöldið þrátt fyrir rok og rigningu, fékk nokkra.
Við vorum svo sannarlega ekki ein, það var þétt setið af fellihýsum og veiðistöngum. Einn hópurinn var líklega ánægður með veiðina og þurfti að vekja alla á staðnum kl. 4 um nótt með bílflauti frá vatninu og langleiðis út dalinn.
Elma var alsæl með fyrstu ferð sumarsins. Fékk að rúlla upp og niður fellihýsinu eða "kjallaranum" eins og hún kallar fellarann og þeyttist á milli svefnplássana.
Sunnudagurinn var bongóblíða. Þá var skóflan og fatan tekin með niður að vatni og sandkastali búinn til, vaðið í vatninu sem endaði með að skipta þurfti um alklæðnað. Rosa gaman.
Yndisleg ferð.

sunnudagur, 1. júní 2008

Fyrsta hjólaferð Elmu



Elma fann þetta fína hjól með hjálpardekkjum fyrir utan blokkina. Horfði hugfangin á hjólið áður en hún skellti sér á bak. Hún steig á pedalana og flaug af stað. Engin hræðsla, bara gaman ... sérstaklega fyrir móðurina sem hljóp á eftir henni tilbúin til að kasta sér í jörðina til að hindra fall barn sins. Elma fékk góðan stuðning og pepp frá stóru systur sem hjólaði með henni nokkra hringi.

Ása málari

Laufrimi 24 fór í sumarfötin í gær, laugardag 31. maí, er gengið í blokkinni komu saman og máluðu útigang blokkarinnar. Ása málaði ekki aðeins blokkina, heldur sjálfan sig líka, hún var langflottust.

Kósý systkini

Bjartmar og Elma í kósý að horfa á The Simpson, eitt uppáhaldssjónvarpsefni Elmu.

sunnudagur, 25. maí 2008

Lautarferð


Fyrsta lautarferð sumarsins upp í Heiðmörk var farin í dag.

laugardagur, 17. maí 2008

Vorferð Funaborgar






Í dag fór Funaborg, leikskóli Elmu, í vorferð á Þingvöll. Rosa spenna myndaðist í litlu krílunum þegar 2 risa stórar rútur rendu í hlaðið hjá Funaborg. Allir komu sér fyrir í rútunum og spenntu beltin. Forsöngvarinn byrjaði og allir tóku undir, "afi minn og amma mín", "Kalli litli kónguló" og fleiri skemmtileg lög voru sungin með hárri raust meirihluta ferðarinnar að Þingvöllum.
Stoppað var við Fræðslumiðstöðina, fyrir ofan Almannagjá og trítluðu þaðan 52 börn á aldrinum 2 - 6 ára, starfslið Funaborgar og foreldrar niður Almannagjánna. Skoðuðum við litla hella, flugur, kóngulær, klaka, Lögberg, kirkjuna, leituðu að fiskunum og tröllunum undir brúnum og margt margt fleira alla leið að Valhöll. Þaðan var farið aftur í rúturnar og keyrt að Þjónustumiðstöðinni þar sem allir fengu nesti og prinspóló í eftirrétt. Nú tók fjörið við, sápukúlur, fallhlíf, hlaup, stökk, hlátur og gleði.
Um tvöleytið var haldið heim á leið eftir frábæra vorferð, flestir, bæði börn og fullorðnir, féllu inní draumaheim um leið og rútan lagði af stað frá Þingvöllum.



föstudagur, 16. maí 2008

Útilega á Brekkustíg


Frændsystkinin, Gylfi og Elma, komin í útilegugírinn.

miðvikudagur, 14. maí 2008

Elma týnd


Snemma er byrjað að taka foreldrana á taugum ... aðeins 3 ára gömul. Elmu finnst rosalegt sport að fara í heimsókn til vinkonu sinnar, Matthildar, á neðri hæðinni eða fá hana í heimsókn. Um kvöldmatarleytið mætti Matthildur í heimsókn, þær stöllur lékur sér í dágóða stund. Þá hringdi dyrabjallan aftur og var þá mætt daman úr blokk 22 (við búum í blokk 24), Sigurrós. Ekki leið langur tími þar til beðið var um að fá að fara heim til Matthildar. Ég fór í að aðstoða dömurnar í skóna en nenntu þær ekki að bíða eftir að ég væri komin í mína skó og þutu út. Nokkrum sekúndum eftir þeim trítlaði ég af stað, fór bak við blokkina að pallinum hjá Matthildi þar sem vinkonurnar ætluðu á trambólínið sem fyllir hálfan pallinn. En þegar þangað var komið voru engar litlar 3 og 4 ára dömur. Næst fór ég heim til Sigurrósar, en þar voru þær ekki ... hjartað var farið að pumpa verulega hratt ... hvað var ég að spá að leyfa 3 ára barni mínu að fara ein út að leika sér ... algjört kæruleysi. Loksins kom ábending að þær gætu verið hjá Símoni sem er líka 4 ára og býr í blokk 22 á efstu hæð. Þangað hlupum við mæður gleymdum að nota dyrabjölluna heldur börðum og börðum á dyrnar. Hurðin opnaðist og heimilisfaðirinn stóð þar fyrir innan og barnaskarinn kom hlaupandi fram í forstofu. HJÚKKKKKK fann barnið!
Næst hleypi ég Elmu einni út rétt fyrir fermingu.

mánudagur, 12. maí 2008

Hvítasunna

Bjössi fór inn í Fjörð að klára leggja flísar á baðherbergið hjá mömmu og pabba, framkvæmdir sem hafa verið á framkvæmdarlistanum í 37 ár ... aldrei of seint : )
Seinna um daginn bættumst við Elma í hópinn á Laufvanginn með 2 fulla poka af hátíðarmat. Stuttu síðar komu systur mínar, Helga og Sigurbjörg, og fylgifiskar Sigurbjargar. Þetta varð enn ein óvænt veisla helgarinnar.
Áður en eftirrétturinn var borinn fram, var Bjössi minn þotinn í sína fyrstu veiði ársins, á Þingvallarvatn. Engin var veiðin í það skiptið, varð hann ekki einu sinni var við fisk. Aðeins kuldaboli sem lét heldurbetur vita af sér.

Notarlegur dagur, annar í Hvítasunnu. Bjössi fór aftur nn í Fjörð að setja fúgu á fínu flísarnar. Það er allt annað að sjá baðherbergið eftir að elskan mín lagði töfra hendur sínar yfir það. Nú er aðeins eldhúsið og svalirnar eftir : )
Við Elma dúlluðum okkur heima, horfðum á Söngvaborg, sungum og dönsuðum með og í leiðinni eldaði Elma dýrindis mat úr kaffibaunum sem hún var búin að kvarna niður, kexi, sykri, vatni og einum ananasbita.
Böddi og Ása komu og náðu í systur sína og skelltu sér í Kolaportið og síðan í bíó að sjá Undrahundinn. Við, gamla gengið á Laufrimanum nutum þess að eiga stund saman. Það er yndislegt að vera án barna í smástund.

laugardagur, 10. maí 2008

Óvissuferð


Á laugardag, 10. maí, bauð Valdís vinkona og Lalli maður hennar til óvissuferðar sem var einnig sameiginleg fertugsveislu. Mæting var kl. 13 í Álftanesskóla þar sem 2 rútur biðu gesta, ein fyrir skyldmenni og hin fyrir vini.
Fyrsta persónan sem ég hitti við rútuna var Erla, okkar yndislega vinkona sem býr í Danmörku og maður hennar Niels. Partýið byrjaði sum sé mjög vel og lofaði góðu.
Leiðsögumenn ferðarinnar tjáðu okkur að Valdís og Lalli myndu hitta okkur síðar, en fyrst færum við í smá bíltúr um nesið. Fyrsti áfangastaður var Bessastaðakirkja. Þegar allir voru komnir inn í kirkjuna, byrjaði brúðarmarsinn að hljóma ... sum sé fertugsveislan snerist á nokkrum sekúndum upp í brúðkaupsveislu : ) Eftir virðulega og fallega athöfn í Bessastaðakirkju, var keyrt á næsta áfangastað sem reyndis vera Elliðarvatnsbærinn við Elliðarvatn. Þar hélt brúðguminn skemmtilega ræðu. Síðan var skálað fyrir brúðhjónunum og afmælisbarni dagsins, Erlu, móður Valdísar.
Enn og aftur var haldið af stað út í óvissuna og lá nú leiðin suður á boginn og endað í kaffihlaðborði á veitingastaðnum Hafið bláa með öllu tilheyrandi fyrir brúðkaupsveislu og fertugsafmæli.
Dagurinn var frábær og ógleymanlegur. Takk fyrir mig, Valdís og Lalli fyrir skemmtilega óvissuferð.

sunnudagur, 27. apríl 2008

Ása handboltagella

Ása keppti í fyrsta sinn í handbolta í dag, sunnudag, með Fjölni. Stelpan stóð sig rosalega vel, sama hvort var í marki eða úti og fékk sinn fyrsta verðlaunapening.